Liverpool og Chelsea eigast þessa stundina við í úrslitaleik enska deildabikarsins.
Staðan er markalaus þegar tæpur stundarfjórðungur er eftir. Joel Matip kom boltanum hins vegar í netið fyrir Liverpool á 67. mínútu en var það dæmt af þar sem Virgil van Dijk var rangstæður og var talinn hafa áhrif á leikinn. Myndbandsdómgæsla var notuð til að komast að niðurstöðunni.
Ljóst er að stuðningsmenn Liverpool eru ósáttir með þetta. Atvikið má sjá hér.