Mesut Özil hefur komið vini sínum Cristiano Ronaldo til varnar eftir neikvæða umræðu undanfarið.
Hinn 37 ára gamli Ronaldo hefur mikið verið í umræðunni. Hann yfirgaf Manchester United á dögunum eftir umdeilt viðtal við Piers Morgan. Þá fagnaði hann ekki með liðsfélögum sínum í Portúgal eftir sigur á Sviss í 16-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í Katar.
„Ég skil ekki hvaðan fjölmiðlar koma með þessar endalausu neikvæðu fréttir af Cristiano. Þeir eru bara að reyna að fá smelli. Sérfræðingar sem eiga ekki ferla lengur eru bara að leita sér að athygli með því að nota stóra nafnið hans og láta hann líta illa út,“ segir Özil, sem spilaði með Ronaldo hjá Real Madrid.
„Hann er að verða 38 ára gamall. Kemur það á óvart að hann skori ekki 50 mörk á tímabili lengur? Allir knattspyrnuaðdáendur þarna úti ættu að vera ánægðir með að sjá hann spila heimsklassa fótbolta í 20 ár.
Ég held að enginn af komandi kynslóð geti jafnað tölurnar hans. Hann verður alltaf í sérflokki. Allir ættu að sýna einum besta íþróttamanni sögunnar meiri virðingu.“