Lionel Messi sá um að klára lið Mexíkó á HM í Katar í kvöld er liðin áttust við í lokaleik dagsins.
Messi náði sem betur fer að spila þennan leik eftir að hafa verið tæpur eftir fyrsta leik liðsins gegn Sádí Arabíu.
Messi kom Argentínu yfir á 64. mínútu áður en Enzo Fernandez skoraði undir lokin eftir sendingu frá goðsögninni.
Sigurinn ger mikilvægur fyrir Argentínumenn sem töpuðu 2-1 gegn Sádunum í fyrstu umferð.
Gunnar Birgisson lýsti leiknum á RÚV og vakti verulega athygli er hann missti sig eftir mark Messi eins og má sjá hér fyrir neðan.