fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
433Sport

Sigurður G hjólar í RÚV og skýtur föstum skotum á Vöndu – „Fer alltaf í felur þegar flett er ofan af getu- og prinsippleysi hennar“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 17. nóvember 2022 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður gagnrýnir RÚV harkalega í nýjum pistli sínum. Lætur hann stöðina heyra það fyrir að sýna frá Heimsmeistaramótinu í Katar, sem hefst á sunnudag.

FIFA hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að leyfa Katar að halda HM, enda mannréttindi fótum troðin í landinu. Þá hafa þúsundir verkamanna látist við byggingu þeirra leikvalla sem spilað verður á yfir mótið.

„Stjórnendur RÚV hafa reynt að skapa ríkishlutafélaginu þá ímynd að þar á bæ berjist starfsmanneskjur gegn hvers kyns ofbeldi. Þess vegna fá meintir ofbeldismenn ekki tónlist sína spilaða hjá RÚV; þeir verða ekki til,“ skrifar Sigurður.

„Stjórnendur Ríkisútvarpsins sáu hins vegar ekkert athugavert við að kaupa sýningarrétt að HM í Katar þar sem ofbeldi og mannréttindabrot eru daglegt brauð og mannvirkin sem leikir fara fram byggðir af þrælum, hverra líf var einskis virði. Fyrir stuðning við þessa ofbeldismenn kaus RÚV að greiða stórfé gegnum hin spilltu alþjóðlegu knattspyrnu samtök-FIFA-. Það fé bjuggu stjórnendur RÚV ekki til heldur eru þeir að styðja ofbeldi með skattfé og auglýsingafé sem kemur frá fyrirtækjum sem þykjast hafa einhverja samfélagslega ábyrgð en eru með öllu sneidd henni eins og stjórnendur RÚV sem alltaf eru til í að dansa kringum gullkálfinn og haga seglum eftir vindi.“

RÚV ætlar að senda starfsmenn á staðinn til að fylgjast með gangi mála á HM. Þetta telur Sigurður allt annað en eðlilegt.

„Til að kóróna vitleysuna og undirstrika hræsnina hefur RÚV ákveðið að senda lið af íþróttadeild til Katar þó Ísland eigi þar engan fulltrúa, nema kannski formann KSÍ, sem seldi Aröbum í nágranna ríki Katar nýlega afnot af karlalandsliði Íslands í nafni baráttu sinnar fyrir jafnrétti og bættri stöðu kvenna í landi kaupandans.“

Þarna skýtur Sigurður á Vöndu Sigurgeirsdóttur, formann KSÍ. Hann heldur áfram.

„RÚV hefur að sögn ekki náð tali af formanninum til að ræða þessa sölu og árangurinn af jafnréttisspjalli hennar við arabana, enda fer hún alltaf í felur þegar flett er ofan af getu- og prinsippleysi hennar. Kannski nær íþróttadeild RÚV viðtal við formanninn í sandinum og sólinni í Katar, þar sem þau fá sameiginlega notið afrakstur ofbeldis stjórnvalda þar í landi.

RÚV ætti fyrir hverja útsendingu frá HM í Katar í nafni baráttu fyrir bættum heimi að sýna brot af sögu þeirra í það minnsta 6.500 verkamann sem létust við gerð þeirra mannvirkja sem skapa umgjörð um útsendinguna og opna söfnunarreikning fyrir þá sem ekkert eiga en gerðu HM í Katar mögulegt. Sú saga er nokkuð vel þekkt og hefur verið sýnd í það minnsta á norrænum sjónvarpsstöðvum nú í aðdraganda HM.“

Sigurður segir HM í ár enga gleðihátíð.

„HM er ekki hátíð fótboltans heldur minnisvarði um spillingu og mannréttindabrot sem RÚV vill hampa.

Því miður getur enginn sagt RÚV upp, en hægt er að sniðganga útsendingar frá keppninni; gera áhorfið að engu og spilla þar með sjálfshátíð RÚV í boði skattgreiðenda og sniðganga vörur þeirra sem kosta gleðina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hrun Liverpool er áhugavert – Svona var staðan í lok janúar þegar Klopp kynnti áform sín

Hrun Liverpool er áhugavert – Svona var staðan í lok janúar þegar Klopp kynnti áform sín
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið
433Sport
Í gær

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik
433Sport
Í gær

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton