Mikel Arteta stjóri Arsenal flaug til Denver í Colorado eftir jafntefli liðsins gegn Burnley á sunnudag.
Arteta var mættur á leik Colorado Avalanche og Chicago Blackhawk í NHL deildinni í gærkvöldi.
Með Arteta á leiknum var Stan Kroenke eigandi Arsenal en þeir voru að funda um málefni félagsins.
Arteta reynir að sannfæra Kroenke og stjórnendur Arsenal um að versla framherja áður en félagaskiptaglugginn lokar í næstu viku.
Arteta stoppar ekki lengi í Bandaríkjunum því hann er svo á leið til Dubai þar sem Arsenal ætlar í æfingaferð. Ekkert verður leikið í enska boltanum um næstu helgi.