Nú er í gangi leikur Brentford og Arsenal en liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni.
Um er að ræða fyrri leik dagsins en Everton og West Ham munu svo spila klukkan 13:15 í Liverpool.
Thomas Frank, stjóri Brentford, er klæddur í jakka sem er frá íslenska fyrirtækinu 66 gráður norður.
66 gráður norður eða 66°North er íslensk fatalína sem var stofnuð árið 1926 og ættu flestir að kannast við vörurnar.
Frank er frá Danmörku og er væntanlega ágætis Íslandsvinur en búast má við því að hann hafi heimsótt landið.
Daninn leit vel út í þessum fína jakka frá 66 eins og má sjá hér fyrir neðan.
Frank að reppa 66, þetta er risastórt! @66north pic.twitter.com/srdCQu02f7
— Svanur 🇵🇸 (@SvanurP) September 18, 2022