Næst síðasta umferð Lengjudeildar karla fór fram nú í dag og er ljóst að Fylkir mun enda tímabilið á toppnum.
Fyrir þessa fjörugu umferð var Fylkir búið að tryggja sæti sitt í Bestu deildinni ásamt HK sem er í öðru sæti.
Fylkismenn völtuðu yfir Þrótt Vogum í dag á meðan HK tapaði 4-3 gegn Grindavík.
Það þýðir að Fylkir er á toppi deildarinnar með 51 stig, átta stigum á undan HK fyrir lokaumferðina.
Öll alvöru baráttan í deildinni er búin en KV og Þróttur Vogum eru þau lið sem munu falla í 2. deildina.
Hér má þó sjá úrslitin í dag.
Fylkir 4 – 0 Þróttur V.
1-0 Andy Pew(’30, sjálfsmark)
2-0 Mathias Laursen(’34)
3-0 Benedikt Daríus Garðarsson(’50)
4-0 Óskar Borgþórsson(’78)
Grindavík 4 – 3 HK
1-0 Freyr Jónsson(‘5)
1-1 Örvar Eggertsson(’34)
2-1 Símon Logi Thasaphong(’43)
2-2 Örvar Eggertsson(’53)
3-2 Aron Jóhannsson(’63)
4-2 Kristófer Páll Viðarsson(’78)
4-3 Þorbergur Þór Steinarsson(’89)
Vestri 2 – 2 Selfoss
0-1 Gonzalo Zamorano(’43)
1-1 Nicolaj Madsen(’45)
1-2 Christian Rodríguez(’77, sjálfsmark)
2-2 Martin Montipo(’91)
KV 1 – 0 Þór
1-0 Hrafn Tómasson (’56)
Kórdrengir 4 – 0 Afturelding
1-0 Sverrir Páll Hjaltested(’43, víti)
2-0 Sverrir Páll Hjaltested(’50)
3-0 Arnleifur Hjörleifsson(’81)
4-0 Axel Freyr Harðarson(’86)
Fjölnir 0 – 1 Grótta
0-1 Kjartan Kári Halldórsson(’70)