Liverpool horfir til Leroy Sane, kantmanns Bayern Munchen, sem möguleika í sóknarlínu sína. 90min segir frá.
Hinn 26 ára gamli Sane á þrjú ár eftir af samningi sínum við Bayern. Það gæti því þurft allt að 50 milljónir punda til að fá Bayern til að íhuga að selja leikmanninn.
Liverpool seldi Sadio Mane til Bayern Munchen á 35 milljónir punda fyrr í sumar og gæti því leitað að kantmanni.
Sane var áður leikmaður Manchester City. Þar varð hann tvisvar sinnum Englandsmeistari. Hann fór til Þýskalands árið 2020.
Á síðustu leiktíð skoraði Sane sjö mörk og lagði upp önnur sjö í þýsku efstu deildinni.