Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfari karlaliðs FH, var svekktur í viðtali eftir tap gegn Val í Bestu deildinni í gærkvöldi.
Leiknum lauk 2-0, þar sem Guðmundur Andri Tryggvason skoraði bæði mörk Vals.
FH er í tíunda sæti deildarinnar eftir fimmtán umferðir með ellefu stig, stigi á undan fallsæti.
Eiður Smári var eftir leik spurður út í dómgæsluna í viðtali við Fótbolta.net. Leikmenn FH fengu til að mynda á sig fimm spjöld í leiknum.
„Eigum við ekki að segja að það sé bara mjög jöfn lína á dómgæslu heilt yfir í sumar og þið megið ákveða hvar hún liggur,“ svaraði Eiður, áður en hann gekk úr viðtalinu.
Blaðamaðurinn Helgi Seljan hafði gaman að þessu og setti saman skemmtilegt myndband á Twitter. Það má sjá hér að neðan.
Geitin inn pic.twitter.com/t5FNHKFpD0
— Helgi Seljan (@helgiseljan) August 3, 2022