Trent Alexander-Arnold er í gríðarlega óvænt orðaður við Barcelona. Liverpool Echo segir frá því að Börsungar hafi sett hægri bakvörðinn á óskalista sinn fyrir næsta sumar.
Barcelona hefur eytt miklum fjármunum í leikmenn í sumar. Menn á borð við Robert Lewandowski, Raphinha og Jules Kounde hafa komið til félagsins, svo aðeins nokkur dæmis séu tekin.
Katalóníustórveldið telur að með því að fá Alexander-Arnold næsta sumar, yrði liðið tilbúið.
Samningur leikmannsins við Liverpool rennur út árið 2025. Hann er uppalinn á Anfield.
Liverpool hefur í gegnum tíðina selt lykilmenn á borð við Luis Suarez, Philippe Coutinho og Javier Mascherano til Barcelona. Það verður þó að teljast ólíklegt að Alexander-Arnold fari þá leið.