Vestri 2 – 1 Grindavík
0-1 Tómas Leó Ásgeirsson (’23)
1-1 Martin Montipo (’55)
2-1 Elmar Atli Garðarsson (’73)
Vestri vann heimasigur í Lengjudeild karla í dag er liðið mætti Grindavík á Olísvellinum.
Grindvíkingar byrjuðu betur í dag og komust yfir með marki frá Tómasi Leó Ásgeirssyni sem var eina mark fyrri hálfleiks.
Á 55. mínútu jafnað Martin Montipo metin fyrir Vestra og á 73. mínútu var Elmar Atli Garðarsson búinn að koma liðinu yfir.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og er Vestri nú í sjötta sætinu með 12 stig, stigi á eftir Grindavík sem var að tapa sínum fyrsta leik í sumar.