Everton vann magnaðan 3-2 endurkomusigur gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í gær. Sigurinn þýðir að Everton leikur í efstu deild á næstu leiktíð eftir að hafa verið í bullandi fallbaráttu meirihluta tímabils.
Gestirnir leiddu 2-0 í hálfleik með mörkum frá Jean-Philippe Mateta og Jordan Aywe. Michael Keane minnkaði muninn fyrir heimamenn þegar níu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og Richarlison jafnaði metin á 75. mínútu.
Dominic Calvert-Lewin tryggði Everton sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Demarai Gray. Stuðningsmenn Everton hlupu inn á völlinn í kjölfarið og þurfti að reka þá aftur í stúku til að halda leiknum áfram.
Mikill hiti var í stuðningsmönnum Everton en ein eldri kona sem styður Everton var bálreið í stúkunni og rassskellti Joachim Andersen leikmann Palace.
Atvikið hefur vakið mikla athygli en það má sjá hér að neðan.
An Everton fan spanks Joachim Andersen in frustration pic.twitter.com/hRvZTNkF01
— Project Football (@ProjectFootball) May 20, 2022