Það eru 14 dagar í að KA á að spila sinn fyrsta heimaleik í Bestu deild karla á Akureyri. Öllum er þó ljóst að leikurinn fer ekki fram þar.
Aðstæður á Akureyri eru ekki góðar til að hefja knattspyrnumót svo snemma á vorin. KA á að mæta Leikni þann 20 apríl á Greifavellinum.
Verið er að vinna að nýjum heimavelli KA sem verður á heimasvæði félagsins en þar verður gervigras.
Sævar Pétursson framkvæmdarstjóri KA birti mynd af heimasvæði félagsins í dag. „4 dagar í fyrsta heimaleik. Alveg sama hvað mönnum finnst þá er gervigrasið framtíðin á Akureyri. Ekki nema ca 15 cm af snjó sem komu í nótt,“ skrifar Sævar.
Ljóst er að KA mun spila sína fyrstu heimaleiki á Dalvík en leikurinn er þó enn skráður á Greifavöllinn.
14 dagar í fyrsta heimaleik. Alveg sama hvað mönnum finnst þá er gervigrasið framtíðin á Akureyri. Ekki nema ca 15 cm af snjó sem komu í nótt. pic.twitter.com/WMFaw72Kmr
— saevar petursson (@saevarp) April 6, 2022