Það virðist æ líklegra að Erik ten Hag verði næsti stjóri Manchester United.
Ralf Rangnick er bráðbirgðastjóri Man Utd eins og er en nýr stjóri tekur við eftir þessa leiktíð.
Nú í morgun greindi Mirror frá því að Man Utd hafi komist að því að klásúla væri í samningi ten Hag sem hann skrifaði undir við félag sitt, Ajax, fyrir ári síðan sem gerir honum kleyft að taka við öðru liði ef það borgar 1,68 milljónir punda fyrir þjónustu hans.
Upprunalega hélt Man Utd að félagið þyrfti að borga Ajax nær 5 milljónum punda. Þetta eru því afar jákvæðar fréttir.
Ten Hag staðfesti í gær að viðræður við Man Utd hafi átt sér stað.
„Fólk þekkist í þessum heimi, það er eðlilegt að funda með aðilum frá öðrum félögum,“ sagði Ten Hag um stöðu mála.