Manuel Lanzini, leikmaður West Ham United, getur prísað sig sælan eftir að hafa sloppið nánast óskaddaður frá bílslysi seinnipart miðvikudagsins í þessari viku. Sóknarmaðurinn þakkar fyrir stuðninginn í færslu á Instagram.
Lanzini var farþegi í bíl á A12 veginum þegar að bílstjórinn missti stjórn á ökutækinu. Bíllinn endaði á hlið og óttuðust aðrir vegfarendir að illa hefði farið fyrir þeim sem lentu í slysinu.
Talsmaður West Ham United staðfesti hins vegar stuttu síðar að Lanzini og ökumaður bílsins hefðu sloppið án teljandi áverka.
Á Instagram síðu sinni þakkar Lanzini fólki fyrir stuðninginn og velfarnaðaróskirnar.
,,Ég vil þakka öllum fyrir hlýjar kveðjur. Þær hafa hjálpað mér en ég þakka einnig guði fyrir að ekki hafi farið verr,“ skrifar Lanzini meðal annars á Instagram.
Búist er við því að sóknarmaðurinn verði í leikmannahópi West Ham United um helgina þegar að liðið mætir Everton.
View this post on Instagram