Jón Daði Böðvarsson skoraði fyrsta mark Bolton í 4-0 sigri á Wimbledon í ensku C-deildinni í dag. Selfyssingurinn gekk til liðs við Bolton í janúar.
Jón Daði lagði einnig upp þriðja mark Bolton í leiknum.
Bolton er í tíunda sæti deildarinnar með 48 stig, 7 stigum frá umspilssæti. Liðið hefur átt góðu gengi að fagna frá komu Jóns Daða.