Máni Austmann Hilmarsson hefur gengið frá samningi við FH og kemur frítt til félagsins. Arnar Laufdal Arnarsson sem stýrir Ungstirnunum á Fótbolta.net greinir frá á Twitter.
Máni er öflugur leikmaður en samningur hans við Leikni var á enda, hefur Máni skoðað kosti sína síðustu mánuði og samið við FH.
Máni ólst upp í Stjörnunni en fór ungur að árum til FCK í Danmörku. Hann er 23 ára gamall.
FH að sækja Mána Austmann sem er samningslaus . Allt klappað og klárt✍🏼🤝 pic.twitter.com/voZn5dq4B5
— Arnar Laufdal (@AddiLauf) January 12, 2022