fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Guðlaugur verður ekki áfram með Þrótt

Helga Jónsdóttir
Þriðjudaginn 28. september 2021 21:39

Mynd/Þróttur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Baldursson mun ekki halda áfram með Þrótt á næsta tímabili en liðið féll úr Lengjudeildinni niður í 2. deild á tímabilinu.

Guðlaugur tók við Þrótti fyrir tímabilið en gengi liðsins var ekki gott í sumar. Í tilkynningu félagsins segir að Guðlaugur hafi óskað eftir því að láta af störfum. Einnig segir að leit að nýjum þjálfara sé þegar hafin. Tilkynningu Þróttar má sjá hér að neðan.

„Í dag, 28. september 2021, tilkynnti Guðlaugur Baldursson þjálfari meistaraflokksliðs karla í Þrótti, að hann óskaði eftir að láta af störfum. Stjórn deildarinnar hefur orðið við þeirri ósk þó hún hefði gjarna vilja vinna með Guðlaugi áfram. Stjórn knd. vill af þessu tilefni þakka Guðlaugi fyrir afar gott samstarf sem aldrei hefur borið skugga á, góð kynni og mikilvægt framlag til Þróttar. Stjórn knd. Þróttar óskar Guðlaugi jafnframt velfarnaðar í leik og starfi í framtíðinni.

Leit að þjálfara til að leiða karlalið Þróttar upp úr 2. deild er þegar hafin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði