fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Lárus Orri hjólar í Arnar og segir: ,,Cry me a river“

Helgi Sigurðsson
Þriðjudaginn 14. september 2021 19:00

Arnar Þór Viðarsson. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, gefur lítið fyrir það sem Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska A-landsliðs karla, sagði um erfiðleika sína í starfi undanfarið.

Stormur hefur verið í kringum Knattspyrnusambandið. Það hefur verið sakað um að hylma yfir meint kynferðisbrot. Stjórnin, sem féll svo, bannaði Arnari að velja leikmenn í hópinn.

„Ég þurfti nánast að spila leikina sjálfur því margir leikmenn voru ekki til staðar. Þegar ég tók við í desember var ég með draumalið á blaði en nú er staðan breytt,“ segir Arnar í viðtalinu og Fótbolti.net segir frá.

Arnar segir í viðtalinu möguleika á því að reyndir leikmenn hafi spilað sinn síðast landsleik. Arnar var spurður út í málefni Gylfa Þórs Sigurðssonar, hann er laus gegn tryggingu í Bretlandi á meðan mál hans er til rannsóknar.

„Ég get ekki tjáð mig um það mál. Sem þjálfari þá sakna ég þess að hafa mína Kevin De Bruyne og Eden Hazard í íslenska liðinu. Frá draumaliðinu sem ég var með á blaði eru bara tveir eftir,“ sagði Arnar en ætla má að um sé að ræða Birki Bjarnason og Jóhann Berg Guðmundsson.

Ég skil gagnrýnina en ég hef ekki svörin. Formaðurinn er farinn, stjórnin er farin. Ég ráðlegg mig við yfirmann fótboltamála. Og sá maður er ég sjálfur. Þetta hefur verið stormur og ég var í honum miðjum. Ég þurfti skyndilega að svara fjölmiðlum en ég gat eki gefið svörin. Á sama tíma þurfti ég að undirbúa leiki,“ sagði Arnar einnig í viðtalinu.

Lárus segist gera sér grein fyrir því að verkefni Arnars sé erfitt, þjálfarinn verði hins vegar að takast á við stöðuna eins og hún er í dag.

,,Cry me a river. Erfið staða og erfitt verkefni? Ekki spurning, en er þetta ekki orðið fínt af þessum grátkór hjá landsliðsþjálfaranum/yfirmanni knattspyrnumála. Svona er staðan í dag deal with it and get on with the job,“ skrifaði Lárus á Twitter.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Í gær

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Í gær

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United