fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Arnar Sveinn kominn með nóg af neikvæðri umræðu í kringum kórónuveirufaraldurinn og skýtur á fjölmiðla – ,,Hvenær ætlum við að hætta þessum hræðsluáróðri?“

Helgi Sigurðsson
Þriðjudaginn 27. júlí 2021 12:00

Arnar Sveinn. Skjáskot: YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Sveinn Geirsson, formaður leikmannasamtaka Íslands, segist vera kominn með nóg af þeirri neikvæðu umræðu sem er í kringum kórónuveirufaraldurinn hér heima. Hann segir fjölmiðla bera mikla ábyrgð á því hvernig umræðan er.

Síðustu daga hefur smittölum á Íslandi fjölgað og hefur sóttvarnaraðgerðum aftur verið skellt á. 96 greindust til að mynda með kórónuveiruna í gær. Þó liggja aðeins tveir á sjúkrahúsi.

,,Sorry, en hvenær ætlum við að hætta þessum hræðsluáróðri? Hvenær má fara að horfa á jákvæðu hliðarnar? Fjölmiðlar, þið berið risa ábyrgð á því hvernig umræðan er og stjórnið því hvaða spurninga þið spyrjið. Setjið ykkur í stand, takk,“ skrifaði Arnar á Twitter í dag.

Arnar telur að áherslan sé á röngum atriðum í tengslum við veiruna. Hann segir skort á jákvæðari fréttafluttning, til að mynda af því hversu fáir veikjast alvarlega af veirunni hér á landi.

,,Af hverju er áherslan ekki öll á því hvað eru ofboðslega fáir alvarlega veikir? Ap langflestir finni fyrir litlum eða engum einkennum? Að bóluefnin séu klárlega að hjálpa?“

,,Þetta er orðið alveg ótrúlega þreytt. Endalaust neikvæðni og volæði – og svo erum við í sjokki hvernig umræðan er almennt hérna um hvað sem er. Endalaus pólarísering og leiðindi sem skila nákvæmlega engu. Þetta er partur af því. Breytum þessu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“
433Sport
Í gær

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Í gær

Chelsea væri í fallsæti án Palmer

Chelsea væri í fallsæti án Palmer