Paris Saint-Germain er stórhuga fyrir næstu leiktíð og virðist hvergi nærri hætt á félagaskiptamarkaðnum.
Félagið hefur þegar fengið til sín þá Gianluigi Donnarumma, Sergio Ramos, Achraf Hakimi og Gini Wijnaldum.
Þá er Paul Pogba nú sterklega orðaður við franska stórveldið í kjölfar frétta um að hann gæti verið á leið frá Manchester United. Hann er sagður hafa hafnað nýjum samningi við enska félagið.
Mirror tók saman hugsanlegt byrjunarlið PSG fyrir næstu leiktíð. Þar gera þeir ráð fyrir Pogba á miðjunni. Liðið er ógnarsterkt og gæti klárlega stefnt á að sigra Meistaradeild Evrópu.
Liðið má sjá hér fyrir neðan.