fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Gömlu karlarnir framlengja við Chelsea

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 4. júní 2021 17:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea hefur staðfest það að samningur Olivier Giroud við félagið var framlengdur í apríl. Um er að ræða ákvæði sem Chelsea gat virkt í samningi hans.

Giroud er 34 ára gamall en hann hefur verið í herbúðum Chelsea í þrjú og hálft ár, segir félagið að hann verði í ár til viðbótar.

Giroud er þó sagður hafa áhuga á að skoða aðra kosti enda hefur hann verið í aukahlutverki hjá Chelsea. Giroud lék áður með Arsenal.

Chelsea hefur einnig staðfest að Thiago Silva hafi framlengt samning sinn við félagið til eins árs, miðvörðurinn var að klára sína fyrstu leiktíð með Chelsea sem vann Meistaradeildina á dögunum.

Silva er 36 ára gamall en hann lék 34 leiki fyrir félagið á sínu fyrsta tímabili. Thomas Tuchel stjóri liðsins framlengdi samning sinn til 2024 fyrr í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“
433Sport
Í gær

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Í gær

Chelsea væri í fallsæti án Palmer

Chelsea væri í fallsæti án Palmer