fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Fjölskyldu dómara á Íslandi hótað – Áreiti og ógnandi tilburðir

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 21. júní 2021 14:42

©Anton Brink © 365 ehf / Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KSÍ hefur sent yfirlýsingu frá sér er varðar framkomu leikmanna og annara í garð dómara hér á landi. Dökk mynd er dregin upp af ástandinu og hafa nokkur atvik komið upp síðustu vikur.

Þar segir að ástandið hafi verið slæmt síðustu daga og vikur. „Undanfarnar vikur hafa borist of margar fréttir og frásagnir af miður fallegri framkomu í garð knattspyrnudómara. Áreiti og ógnandi tilburðir hafa sést í leikjum og eftir leiki. Dómurum hefur verið hótað vegna ákvarðana þeirra, og það hefur jafnvel gerst að hótanir berist fjölskyldu dómara eftir leik! Nú er mál að linni. Þetta verðum við að stöðva og við þurfum að gera það í sameiningu,“ segir í yfirlýsingu KSÍ.

Þannig segir að fjölskylda dómara hafi verið hótað eftir leik, málið er litið mjög alvarlegum augum.

„Víða er það þannig að starfsaðstaða dómara, búningsklefar og önnur aðstaða, er ekki boðleg . Því miður gerist það að gæslumenn, sem eiga að gæta öryggis dómara í leikjum, misnoti aðstöðu sína og nálægð við dómarana og hreyti ónotum í þá, vegna ákvörðunar í leiknum sem viðkomandi mislíkaði. Það sama á við um marga aðra starfsmenn félaga og leikja. Þetta er ekki í lagi hjá okkur.“

Meira úr yfirlýsingu KSÍ:
Við erum öll að reyna að byggja upp knattspyrnuna í landinu. Stöðug neikvæðni og niðurrif í garð dómara, svo ekki sé minnst á ógnandi hegðun, hjálpar okkur ekki á þeirri vegferð. Dómarar eru ómissandi hluti af leiknum og við einfaldlega verðum að fara að sýna þeirra störfum meiri virðingu, tillitssemi og ekki síst þakklæti. Dómurum verða á mistök eins og leikmönnum en þeir hafa ástríðu fyrir fótboltanum eins og við öll og eiga betra skilið.

Dómararnir koma úr félögunum alveg eins og leikmennirnir. Það geta engin aðildarfélög látið eins og dómgæsla komi þeim ekki við, eins og það sé bara mál KSÍ að búa til og skaffa dómara á leiki. Hér verða félögin mörg hver að gera mun betur, koma upp hópi dómara, búa þeim umgjörð sem sómi er að og gera það eftirsóknarvert að koma og starfa við dómgæslu fyrir félögin, sem sum hver standa sig virkilega vel í þessu, en þau eru of fá. Hér verða forráðamenn margra félaga að gera betur og byggja dómgæsluna okkar upp.

Orð og gjörðir leikmanna, þjálfara og annarra fulltrúa félaganna hafa áhrif á aðra. Þetta einfaldlega verður að breytast og við í sameiningu verðum að skapa jákvæðara umhverfi fyrir dómgæslu og fótboltann í landinu.

Stjórn KSÍ

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
433Sport
Í gær

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum