fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Klopp frétti fyrst af þátttöku Liverpool í Ofurdeildinni í gær – Hann og leikmenn Liverpool ekki hluti af ferlinu

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 19. apríl 2021 18:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að sín skoðun á Ofurdeildinni svokölluðu sem stendur til að setja á laggirnar, hafi ekki breyst síðan úr viðtali árið 2019.

Þá sagðist Klopp vera á móti Ofurdeildinni. Að hans mati er Meistaradeild Evrópu hin raunverulega ofurdeild. Hann dró það í efa að stuðningsmenn Liverpool myndu vilja sjá Liverpool keppa á móti Real Madrid tíu ár í röð. Fegurðin við Meistaradeild Evrópu væri að þú værir í sífellu að mæta nýjum liðum.

Í viðtali fyrir leik Liverpool og Leeds í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, sagði Klopp að sín skoðun á Ofurdeildinni hefði ekki breyst.

„Þetta er erfitt, stuðningsmenn eru ekki ánægðir og ég skil það. Ég og leikmennirnir erum ekki hluti af þessu ferli,“ sagði Klopp í viðtali við BBC.

Liverpool er eitt af stofnfélögum Ofurdeildarinnar en svo virðist sem þjálfarateymi liðsins og leikmenn hafi ekki verið hafðir með í ráðum.

„Við fengum einhverjar upplýsingar en ekki mikið. Flest af því kom frá fjölmiðlum,“ sagði Klopp fyrir leik Liverpool og Leeds í kvöld.

Leiður ef þetta markar endalok Meistaradeildar Evrópu

Klopp er mikill aðdáandi Meistaradeildar Evrópu og segir það hafa verið draum sinn að stýra liði í keppninni.

„Ég er 53 ára. Síðan að ég hef verið þátttakandi atvinnumanna knattspyrnu hefur Meistaradeild Evrópu verið til staðar. Mitt markmið var alltaf að stýra liði þar og ég hef ekkert á móti Meistaradeild Evrópu eins og hún er núna.“

„Ég er hrifinn af því að West Ham eigi möguleika á að spila í keppninni á næsta tímabili. Ég vil ekki að þeir nái því vegna þess að við viljum það líka en ég er hrifinn af því að þeir eigi möguleika,“ sagði Klopp í viðtali við BBC.

Stuðningsmennirnir eru mikilvægasti hluti knattspyrnunnar

Klopp vill ekki sjá gjá myndast á milli félagsins og stuðningsmanna Liverpool.

„Knattspyrnufélagið Liverpool er miklu stærra en einvher ein ákvörðun. Það mikilvægasta við fótboltann eru stuðningsmennirnir og liðið. Við þurfum að sjá til þess að ekkert komi upp á milli þeirra,“ sagði Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, fyrir leik Liverpool og Leeds í ensku úrvalsdeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði