fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

Markalaust í Brighton

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 12. apríl 2021 21:09

Danny Welbeck

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brighton tók á móti Everton í lokaleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Hvorugu liðinu tókst að koma knettinum í markið.

Fyrri hálfleikur var fremur rólegur. Markmenn liðanna, Robert Sanchez og Robin Olsen, höfðu lítið fyrir stafni. Tom Davies fékk besta færi Everton eftir um hálftíma leik þegar hann skallaði framhjá marki Brighton. Besta færið hinum megin á vellinum fékk Neal Maupay þegar skot hans fór af Yerri Mina og rétt framhjá. Staðan í hálfleik var markalaus.

Í síðari hálfleik voru það heimamenn sem voru líklegri til að skora en nýttu ekki færin sín til þess. Everton fékk að vísu dauðafæri í uppbótartíma en Alex Iwobi brást bogalistin.

Gylfi Þór Sigurðsson var á sínum stað í byrjunarliði Everton. Hann lék allan leikinn á miðjunni.

Everton hefði með sigri getað gert sig virkilega gildandi í Meistaradeildarbaráttunni. Þeir eru nú 7 stigum á eftir West Ham, sem er í fjórða og síðasta Meistaradeildarsætinu. Everton á þó leik til góða á liðin fyrir ofan.

Brighton er í 15.sæti, 7 stigum fyrir ofan fallsvæðið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Víkingur með ógnarsterkan hóp og stórhuga fyrir sumarið – „Það er mikil samkeppni, alveg eins og við viljum hafa það“

Víkingur með ógnarsterkan hóp og stórhuga fyrir sumarið – „Það er mikil samkeppni, alveg eins og við viljum hafa það“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Grátlegt hjá Elíasi og félögum

Grátlegt hjá Elíasi og félögum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Kærkomin endurkoma Orra eftir erfitt ár – „Hann er búinn að vera að brotna niður meiðslalega og vera á dimmum stað“

Kærkomin endurkoma Orra eftir erfitt ár – „Hann er búinn að vera að brotna niður meiðslalega og vera á dimmum stað“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Er á óskalistanum í London ef liðið heldur sér uppi

Er á óskalistanum í London ef liðið heldur sér uppi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Víkingur gerir sinn stærsta samning í sögunni við Boozt

Víkingur gerir sinn stærsta samning í sögunni við Boozt
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gylfi fékk símtal frá Arnari í síðustu viku – „Það breytir engu þó ég sé 23 ára eða fertugur“

Gylfi fékk símtal frá Arnari í síðustu viku – „Það breytir engu þó ég sé 23 ára eða fertugur“