fbpx
Föstudagur 07.nóvember 2025
433Sport

Persónuleg vandamál og óvíst hvenær De Gea snýr aftur

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 4. mars 2021 10:03

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Crystal Palace tók á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær. Leikurinn fór fram á Selhurst Park og endaði með markalausu jafntefli. Það eru vondar fréttir fyrir Manchester United sem má ekki við því að tapa stigum ætli liðið sér að veita nágrönnum sínum í Manchester City samkeppni um Englandsmeistaratitilinn.

Liðið er sem stendur í 2. sæti deildarinnar með 51 stig, fjórtán stigum á eftir Manchester City sem virðist ekki geta tapað knattspyrnuleik um þessar mundir.

David de Gea var fjarverandi í gær og eru ástæðurnar persónulega, það er óvíst hvenær hann snýr aftur. United heimsækir Manchester City á sunnudag.

„Ég veit ekki hvenær hann snýr aftur, þetta er persónulegt mál og það tekur þann tíma sem það þarf að taka,“ sagði Ole Gunnar Solskjær eftir markalausa jafnteflið í gær.

Dean Henderson stóð vaktina í marki United í gær og að lokum bjargaði hann stigi fyrir lærisveina Solskjær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ein goðsögn út en önnur inn hjá íslenska landsliðsmanninum

Ein goðsögn út en önnur inn hjá íslenska landsliðsmanninum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ekki greitt meðlag í fleiri mánuði og gæti endað bak við lás og slá

Ekki greitt meðlag í fleiri mánuði og gæti endað bak við lás og slá
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Nýjasta ofurparið á Englandi vekur athygli – Sögð taka við keflinu eftir að samband fór í vaskinn

Nýjasta ofurparið á Englandi vekur athygli – Sögð taka við keflinu eftir að samband fór í vaskinn
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Héldu minningarathöfn eftir að þjálfarinn lést í miðjum leik á mánudag

Héldu minningarathöfn eftir að þjálfarinn lést í miðjum leik á mánudag