Eyjólfur Héðinsson hefur yfirgefið Stjörnuna og gengið í raðir 2. deildarliðs ÍR. Stjarnan kveður leikmanninn á Facebook-síðu sinni.
Eyjólfur lék 132 leiki fyrir Stjörnuna á sex árum og skoraði fimm mörk.
ÍR hafnaði í áttunda sæti 2.deildar á síðustu leiktíð.
Færslu Stjörnunnar í heild má sjá hér fyrir neðan.