Guðný Árnadóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins og AC Milan í knattspyrnu sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir leik íslenska liðsins gegn Tékklandi á föstudaginn.
Guðný hefur verið notuð sem hægri bakvörður hjá Íslandi, til að mynda í síðasta landsliðsverkefni en er sjálf vön því að spila hægra megin í þriggja manna hafsentakerfi hjá AC Milan á Ítalíu, henni lýst samt bara vel á að vera notuð sem hægri bakvörður með íslenska landsliðinu. ,,Það er bara gaman að prófa nýja stöðu. Það tók mig smá tíma að venjast henni í leiknum gegn Hollandi í síðasta landsliðsverkefni, ég var smá týnd í fyrri hálfleik en svo náði ég að vinna mig hægt og bítandi inn í leikinn. Ég er hugsuð sem hægri bakvörður með landsliðinu og auðvitað vil ég þá spila þá stöðu,“ sagði Guðný á blaðamannafundinum.
Hún býst við erfiðum leik á föstudaginn gegn Tékklandi. ,,Tékkarnir líta vel ut. Þetta er vel spilandi lið sem vill halda boltanum og er með sterka leikmenn innanborðs. Við verðum að mæta klárar til leiks og spila okkar besta leik,“ sagði Guðný Árnadóttir, landsliðskona í knattspyrnu.
Guðný gekk til liðs við AC Milan frá Val árið 2020 og henni líður vel á Ítalíu. ,,Það er gaman að prófa einhvað nýtt. Það er spilaður öðruvísi fótbolti þarna úti heldur en ég hafði vanist hérna heima en ég er mjög ánægð með að hafa tekið þetta skref,“ sagði Guðný sem stefnir á að vinna titla með liðinu. ,,Þetta er frekar nýtt og lið hjá þeim en ég vil vinna titla þarna.“
Leikur Íslands og Tékklands í undankeppni Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu fer fram á Laugardalsvelli á föstudaginn klukkan 18:45.