fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Yfirgáfu knattspyrnudrauminn fyrir frama í klámi – Pabbinn studdi ákvörðunina

433
Þriðjudaginn 19. október 2021 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru ekki margir knattspyrnumenn sem snúa baki við draumi sínum um frama á fótboltavellinum til þess að gerast klámstjörnur. Annað eins hefur þó komið fyrir.

Hér fyrir neðan eru sögur tveggja leikmanna sem yfirgáfu fótboltann og fóru í klámiðnaðinn.

Danny Mountain

Á unglingsárunum var Mountain í herbúðum Southampton og æfði í akademíunni þar. Hann vakti til að mynda áhuga liða eins og Chelsea, Tottenham og West Ham á sínum tíma.

Fyrrum knattspyrnumaðurinn og þjálfarinn Alan Ball sagði föður Mountain að hann gæti náð langt þegar hann var aðeins 12 ára gamall.

Ferli Mountain sem knattspyrnumaður lauk hins vegar þegar hann var 16 ára gamall vegna slæmra meiðsla. Þá sneri hann sér að trésmíði.

En svo komst Mountain í tæri við umboðsmann í klámiðnaðinum í gegnum kærustu sína á þeim tíma. Eitt leiddi af öðru og hann fór að starfa í bransanum.

,,Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast en ég var fullur sjálfstrausts. Ég var ekki stressaður fyrir kynlífs-hlutanum en mér fannst erfitt að tala fyrir framan myndavél. Ég gat ekki stjórnað andliti mínu af stressi,“ sagði Mountain.

Hann segir mömmu sinni ekki hafa litist á blikuna þegar hann byrjaði í klámi en að pabbi hans hafi hvatt hann áfram.

Mountain er í dag 37 ára gamall og hæst launaða karlkyns klámstjarna í Bretlandi.

Danny Mountain.

Davide Iovinella

24 ára gamall lék Iovinella með ASD Calcio í D-deildinni á Ítalíu. Hann langaði hins vegar að eignast meiri pening. Hann sótti þá um að fá að leika í klámmynd.

Hann fékk starfið og flutti síðan til Búdapest í Ungverjalandi til að koma sér inn í bransann þar.

,,Þetta er ekki eins og að vera í rúminu með maka. Þú þarft að leggja hart að þér,“ sagði Iovinella um starfið.

Í dag er hann 28 ára gamall og býr enn í Búdapest. ,,Það væri fullkomið að finna lið til að spila með hér,“ sagði hann og útilokar þar með ekki að byrja aftur í boltanum.

Davide Iovinella.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall
433Sport
Í gær

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
433Sport
Í gær

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“