Eiður Benedikt Eiríksson verður næsti þjálfari Lengjudeildarliðs Þróttar Vogum. Þetta kemur fram í hlaðvarpsþættinum Dr.Football í dag. Hann mun því taka við keflinu af Hermanni Hreiðarssyni sem stýrði liðinu upp í Lengjudeildina en tók síðan við ÍBV eftir tímabilið.
,,Það er mjög líklegt að Eiður Ben verði næsti þjálfari Þróttar Vogum, það er eiginlega bara klárt og verður tilkynnt seinnipartinn í dag,“ sagði Hrafnkell Freyr Águstsson, knattspyrnusérfræðingur í Dr. Football í dag.
Eiður hefur verið þjálfari Vals ásamt Pétri Péturssyni undanfarin tímabil og samstarf þeirra hefur skilað sér í Íslandsmeistaratitlum.
,,Eiður er mjög efnilegur þjálfari og það verður gaman að sjá hann taka þetta skref í að vera aðalþjálfari,“ sagði Hrafnkell í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag.