fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Superettan: Alex Þór skoraði annan leikinn í röð

Ísak Gabríel Regal
Mánudaginn 18. október 2021 18:54

Alex Þór Hauksson. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alex Þór Hauksson var á skotskónum annan leikinn í röð er hann skoraði sigurmark Öster í sænsku b-deildinni í kvöld.

Alex Þór skoraði í síðasta leik Öster fyrir landsleikjahlé í 2-2 jafnteflinu gegn Brage og var aftur á skotskónum í kvöld er liðið tók á móti Vasalund.

Nicolas Mortensen hafði komið heimamönnum yfir strax á 1. mínútu leiks en Alexander Andue og Nikola Vasic komu Vasalund í 2-1 áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks. Matthias Pavic jafnaði svo fyrir heimamenn á 48. mínútu og Alex Þór, sem er miðjumaður að upplagi, skoraði sigurmark heimaliðsins átta mínútum síðar.

Öster er áfram í 7. sæti deildarinnar með 35 stig eftir 25 umferðir. Vasalund situr á botninum með 22 stig.

Tveir aðrir leikir fóru fram í sænsku b-deildinni í kvöld. GIF Sundsvall vann 3-0 sigur á Akropolis á heimavelli og Örgryte og Trelleborg gerðu 2-2 jafntefli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði