fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Þetta er launin sem Messi fær í París – Fær tæpa 4 milljarða um leið og hann mætir

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. ágúst 2021 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lionel Messi grét á blaðamannafundi í gær er hann kvaddi uppeldisfélag sitt, Barcelona. Argentínumaðurinn er líklegur til að fara til PSG á frjálsri sölu en kappinn sagði að ekki væri búið að ákveða neitt. Búist var við að hann myndi endurnýja samning sinn við Barcelona í sumar en félagið er í fjárhagskröggum og gat ekki samið við Messi.

„Ég og fjöldskyldan mín vorum sannfærð um að við myndum vera hérna áfram, heima,“ sagði hann á blaðamannafundi á sunnudaginn.

Getty Images

Búist er við að Messi skrifi undir hjá PSG á allra næstu dögum en launin hans þar verða ekkert slor. Messi mun þéna 25 milljónir evra á tímabili sem gerir 3,7 milljarða íslenskra króna. Búist er við að hann geri tveggja ára samning.

Að auki fær Messi 3,7 milljarða fyrir það eitt að skrifa undir hjá PSG. Messi mun því fyrir árin tvö fá rúma 11 milljarða íslenskra króna.

Laun Messi
3,7 milljarðar á ári
71,3 milljónir á viku
10,2 milljónir á dag
424 þúsund á klukkustund
7 þúsund á mínútuna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Úrslitaleikur Þungavigtarbikarins í Garðabæ í kvöld

Úrslitaleikur Þungavigtarbikarins í Garðabæ í kvöld
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ferli Schmeichel gæti verið lokið – Faðir hans vonar að þessu ljúki ekki svona

Ferli Schmeichel gæti verið lokið – Faðir hans vonar að þessu ljúki ekki svona
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði
433Sport
Í gær

Alonso sagður setja þessi skilyrði fyrir því að taka við Liverpool

Alonso sagður setja þessi skilyrði fyrir því að taka við Liverpool