fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
433Sport

Dean Henderson missir af æfingabúðum Man United í Skotlandi

Ísak Gabríel Regal
Mánudaginn 2. ágúst 2021 20:05

David De Gea og Dean Henderson / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dean Henderson missir af æfingabúðum Man United í Skotlandi en markvörðurinn er að ná sér af Covid-19. Þessi 24 ára gamli Englendingur smitaðist af veirunni fyrir þremur vikum síðan. Félagið gaf út yfirlýsingu þess efnis að Henderson hrjáist af langvarandi þreytu vegna veirunnar. 

Henderson er búinn að ná sér af mjaðmameiðslum sem urðu til þess að hann missti af EM 2020. Man United átti að leika æfingaleik gegn Preston North End á laugardaginn en leiknum var frestað vegna gruns um smit innan herbúða þeirra rauðklæddu.

Hópurinn mætti hins vegar aftur á æfingu á föstudaginn eftir að í ljós kom eftir svokallað PCR próf að enginn leikmaður liðsins reyndist smitaður.

United segir ekki langt í að Henderson mæti aftur á æfingar. David de Gea er hins vegar kominn aftur eftir landsliðsskyldur sínar með Spáni á EM 2020 og bætist í leikmannahópinn í Skotlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Arsenal búið að bjóða nýjan samning – Vill hann halda áfram?

Arsenal búið að bjóða nýjan samning – Vill hann halda áfram?
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórstjarnan skorar utan vallar þrátt fyrir erfiðleikana í vinnunni – Talin vera ein fallegasta kona landsins

Stórstjarnan skorar utan vallar þrátt fyrir erfiðleikana í vinnunni – Talin vera ein fallegasta kona landsins
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Eru í þriðju deild en stefna gríðarlega hátt – Verður stærri en völlur Chelsea og Villa

Eru í þriðju deild en stefna gríðarlega hátt – Verður stærri en völlur Chelsea og Villa
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Afsakar frammistöðu Onana og kennir varnarmanni United um – ,,Setur hann í vandræði frá fyrstu mínútu“

Afsakar frammistöðu Onana og kennir varnarmanni United um – ,,Setur hann í vandræði frá fyrstu mínútu“
433Sport
Í gær

Nýtt sjónarhorn úr myndavél KR sýnir framkomu Smit betur – Hrindir einu barni nokkuð harkalega frá sér

Nýtt sjónarhorn úr myndavél KR sýnir framkomu Smit betur – Hrindir einu barni nokkuð harkalega frá sér
433Sport
Í gær

Mikið fjör í Þýskalandi þegar Real kom í heimsókn – Bæði lið fengu vítaspyrnu

Mikið fjör í Þýskalandi þegar Real kom í heimsókn – Bæði lið fengu vítaspyrnu