

Veronique Rabiot gerði sig að fífli í stúkunni á Evrópumótinu þegar Frakkland datt úr leik gegn Sviss í fyrradag. Sviss vann þá mjög óvæntan sigur í vítaspyrnukeppni þar sem Kylian Mbappe klikkaði á síðustu spyrnu Frakka.
Veronique var áður umboðsmaður Adrien Rabiot sem var í byrjunarliði Frakklands en hún er móðir hans. Hún hefur oft komið syni sínum í klandur með orðum sínum og gjörðum.
Þegar Rabiot var að fara frá PSG árið 2019 var allt í háalofti og þá hraunaði hún yfir forseta franska knattspyrnusambandsins og sonur hennar var ekki valinn í landsliðið.
Rabiot rak móður sína sem umboðsmann en hún var þó mætt í stúkuna á mánudag. Þar las hún yfir fjölskyldu Kylian Mbappe eftir leik, sagði vítaspyrnu hans ömurlega. Þá las hún yfir fjölskyldu Paul Pogba og kenndi honum um þriðja mark Sviss í venjulegum leiktíma.
Atvikið má sjá hér að neðan.
CHOQUÉ !!!
Va falloir consulter Me RABIOT !
Soutiens total à la famille de @KMbappe !!! #FRA #EURO2020 #Rabiot #Mbappe pic.twitter.com/BBqKoKKkZX— 💖mum💖 (@nach_mum) June 29, 2021