Gabigol, leikmaður Flamengo og brasilíska landsliðsins, var settur í hald lögreglu, eftir að hafa verið meðal einstaklinga í ólöglegu spilavíti í Sao Paulo sem lögregla gerði rassíu á.
Gabigol, sem er fyrrum leikmaður Inter Milan var einn af 200 einstaklingum sem höfðu aðhafst í spilavítinu en lögregla fékk tilkynningu um að stórt partý væri í gangi þar sem ekki væri verið að fylgja sóttvarnarreglum.
Ekki var vitað á þeim tímapunkti að ólöglegt spilavíti væri starfandi á svæðinu.
Covid-19 ástandið í Sao Paulo er ekki gott og er svæðið á hæsta stigi í Brasilíu hvað varðar faraldurinn og smit af völdum hans.
Óljóst er hvaða afleiðingar þetta mun hafa á Gabigol en hann er ekki í leikmannahóp Flamengo sem tekur á móti Fluminense í kvöld.