Willy Ta Bi knattspyrnumaður hjá Atalanta á Ítalíu lést í gær eftir harða og erfiða baráttu við krabbamein. Ta Bi var 21 árs þegar hann féll frá.
Hann hafði frá árinu 2019 háð erfiða baráttu við krabbamein en þessi skæði sjúkdómur hafði betur að lokum.
Miklar væntingar voru gerðar til Ta Bi sem knattspyrnumanns, Ataltanta keypti hann í upphafi árs 2019 og vonir stóðu til að hann yrði ein af stjörnum félagsins.
Um mitt árið 2019, skömmu eftir komuna til Atalanta greindist hann hins vegar með krabbamein og hafði háð tæplega tveggja ára baráttu.
„Það er með sorg í hjarta sem við greinum frá andláti Willy Ta Bi. Draumur hans var alltof stuttu, hvíldu í friði Willy,“ var skrifað á heimasíðu Atalanta.