Stíf fundarhöld voru í dag hjá ensku úrvalsdeildinni og verða einnig á morgun en fundað verður með fyrirliðum, stjórum og lykil starfsfólki vegna COVID-19 ástandsins í Bretlandi.
Ein af þeim reglum sem hefur verið sett á vegna Covid-19 faraldursins er að leikmenn mega ekki fallast í daðma þegar mörkum er fagnað. Það hefur gengið erfiðlega fyrir leikmenn að fylgja þessari reglu undanfarið.
Marc Albrighton, leikmaður Leicester City, segir að það sé mjög erfitt að fylgja reglunni.
„Reyndu að fá stuðningsmann að sitja áfram í sófanum þegar liðið hans skorar í sjónvarpinu, það mun ekki gerast. Eins mikið og við munum reyna að virða þessa reglu þá mun það reynast erfitt. Við verðum að virða ástæðuna á bakvið þessa reglu,“ sagði Albrighton í viðtali.
Annar leikmaður í ensku úrvalsdeildinni sem vildi ekki láta nafn síns getið í viðtali við BBC, tekur í svipaðan streng og Albrighton.
„Það er erfitt að hugsa ‘eins gott að fagna ekki vegna Covid,’ ég held að ástæðan fyrir þessu sé sú að fótboltinn er enn í gangi og fólki finnst að hann eigi ekki að vera það og leita leiða til þess að koma einhverju neikvæðu á framfæri,“ sagði leikmaðurinn í samtali við BBC.
🗣 „Try asking a supporter to stay sat on his sofa when his team scores“
Marc Albrighton says it will be difficult to control celebrations but respects the decision pic.twitter.com/WQNcS0rcxb
— Football Daily (@footballdaily) January 14, 2021