Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United hefur boðið 91,3 milljónir punda í enska landsliðsmanninn Jado Sancho. Sky sports greinir frá. Sancho spilar með Borussia Dortmund í þýsku úrvalsdeildinni.
Fyrsta boð United í enska landsliðsmanninn voru 73 milljónir punda sem hækkaði í 91,3 milljónir punda. Verðmiðinn sem Dortmund er með á Sancho er nokkuð hærri eða 108 milljónir punda.
Allt lítur út fyrir það að Sancho muni dvelja áfram í þýskalandi. Félagsskiptaglugginn lokar þann 5. október.
United hefur nú þegar samið við miðjumanninn Donny van de Beek frá Ajax. Fótboltasérfræðingar á Englandi segja aðdáendur United orðna óþreyjufulla eftir fleiri leikmönnum.