Hildur Karítas Gunnarsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 11. mínútu og kom Haukum þar með yfir. Vienna Behnk bætti síðanvið öðru marki fyrir Hauka aðeins þremur mínútum síðar.
Staðan var 2-0 fyrir Haukum í hálfleik en þegar 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik náði Vienna Behnke að skora sitt annað mark og kom Haukum þar með í 3-0. Fleiri mörk voru ekki skoruð og lokaniðurstaðan því 3-0 fyrir Haukum sem sitja í þriðja sæti deildarinnar. Völsungur situr í neðsta sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig.