Liverpool hefur samþykkt að greiða Wolves 35 milljónir punda fyrir framherjann Diogo Jota. Búast má við því að gengið verði frá kaupunum á morgun (Laugardag). Daily mail segir frá.
Jurgen Klopp stjóri Liverpool hefur lengi verið aðdáandi á hraða og sókndirfsku Jota. Hann skoraði 16 mörk á síðustu leiktíð og var með sex stoðsendingar.
Fyrr í dag keypti Liverpool Thiago Alcantara frá Bayern Munchen.
Liverpool er ekki bara að kaupa leikmenn. Þeir vilja losa sig við þá Rhian Brewster og Harry Wilson. Einnig eru líkur á því að Ki-Jana However fari frá Liverpool til Wolves fyrir 10 milljónir punda.