Markalaust var í fyrri hálfleik hjá liðunum en í þeim seinni náði KR að skora fyrsta mark leiksins. Það var Kristján Finnbogason sem gerði það á 63. mínútu leiksins. KR hélt forystunni fram að lokamínútunum en þetta eina mark dugði ekki til. Á 86. mínútu náði Daníel Laxdal að jafna metin fyrir Stjörnuna og þremur mínútum síðar náði Guðjón Baldvinsson að koma Stjörnunni yfir. KR fékk ekki nógu mikinn tíma til að svara þessu og endaði leikurinn meðp 1-2 sigri Stjörnunnar.
Stjarnan komst með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar, 4 stigum frá toppliði Vals, en KR situr í því fimmta, 8 stigum frá toppnum.