fbpx
Föstudagur 28.nóvember 2025
433Sport

Íslandsvinurinn hefur hagað sér og eins og fífl síðustu mánuði – Vildu brjóta á honum lappirnar

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 10. september 2020 08:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mason Greenwood framherji Manchester United virðist ekki bara hafa hagað sér ósæmilega á Íslandi um liðna helgi, heldur virðist hegðun hans hafa farið úr böndunum á þessu ári eftir að hann varð að stórstjörnu Manchester United.Þannig seir Daily Mail frá því í dag að Greenwood hafi undanfarna mánuði verið að leigja hús á Airbnb til að halda partý. Þennan gleðskap hélt Greenwood þegar útgöngubann var í Bretlandi og fólk mátti ekki hittast, ef marka má frétt Daily Mail.

Greenwood hefur leigt sama húsið í sex skipti en það er í úthverfi Manchester og nágrannar þar eru orðnir þreyttir á gleðskap sem Greenwood fær fólk í.

Manchester United er að rannsaka málið segir Daily Mail en í fréttinni segir að Greenwood hafi síðast haldið partý 28 ágúst, nokkrum dögum áður en hann kom til Íslands og braut sóttvarnarreglur með liðsfélaga sínum Phil Foden.

Sean McKay sem býr nálægt húsinu sem Greenwood leigir segir að í minnsta kosti sex skipti hafi Greenwood leigt húsið á Airbnb og haldið alvöru partý. „Greenwood hefur haldið þessi svakalegu partý hérna síðustu mánuði. Það kemur fjöldi fólks saman en 13 geta sofið í húsinu. Lætin eru óbærileg, ég hef bankað upp á nokkrum sinnum og beðið þau að róa sig,“ sagði McKay.

„Tónlistin er í gangi fram eftir morgni, þetta heldur mér vakandi. Húsið hristist.“

,,Eitt kvöldið voru drengir mættir þarna fyrir utan og sögðu Mason Greenwood að hann gæti ekkert í fótbolta, þeir vildu komast inn og brjóta á honum lappirnar. Ég vinn dagvinnu og þetta hefur verið hryllingur.“

McKay var ekki hissa að Greenwood væri einn af þeim sem hefði brotið sóttvarnareglur í Reykjavík með því að hitta íslenska konur. „Þegar ég heyrði af þessum heimskupörum á Íslandi, þá vissi ég að annar þeirra væri hann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þórður Gunnar heldur heim á Ísafjörð

Þórður Gunnar heldur heim á Ísafjörð
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Lögreglan leitar að manni – Fékk munnmök á klósetti og réðst á lögreglu í vikunni

Lögreglan leitar að manni – Fékk munnmök á klósetti og réðst á lögreglu í vikunni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sorgleg kveðja frá ekkju Diogo Jota í tilefni af eins árs afmæli dóttur sinnar

Sorgleg kveðja frá ekkju Diogo Jota í tilefni af eins árs afmæli dóttur sinnar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Þakklátur foreldrum sínum – Keyrðu hann 500 kílómetra oft í viku

Þakklátur foreldrum sínum – Keyrðu hann 500 kílómetra oft í viku
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fullyrt að Halldór sé að taka að sér starf í Vesturbænum

Fullyrt að Halldór sé að taka að sér starf í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ummæli sem féllu eftir leik Real Madrid í gær vekja athygli í ljósi fréttafárs undanfarið

Ummæli sem féllu eftir leik Real Madrid í gær vekja athygli í ljósi fréttafárs undanfarið
433Sport
Í gær

Fólk trúir ekki eigin augum yfir snilli ungstirnis Arsenal – Myndband

Fólk trúir ekki eigin augum yfir snilli ungstirnis Arsenal – Myndband
433Sport
Í gær

Carragher búinn að fá nóg – Segir þessa ákvörðun Slot vera brottrekstrarsök

Carragher búinn að fá nóg – Segir þessa ákvörðun Slot vera brottrekstrarsök