Emil Hallfreðsson gæti verið á leið Í FH, þetta kom fram í Dr. Football í dag. Miðjumaðurinn knái hefur átt magnaðan feril.
Emil hefur síðasta hálfa árið verið í herbúðum Padova á Ítalíu en 16 ár eru síðan að Emil yfirgaf FH.
Síðan þá hefur Emil spilað í atvinnumennsku, lengst af á Ítalíu en var einnig í herbúðum Tottenham.
Miðjumaðurinn er 35 ára gamall en hann hefur verið einn besti leikmaður Íslands síðustu ár.
Einnig kom fram í Dr. Football að Hörður Ingi Gunnarsson væri á leið til FH frá ÍA.