Moussa Marega, leikmaður Porto, labbaði af velli í gær er liðið mætti Vitoria Guimaraes í Portúgal.
Marega skoraði sigurmark Porto í leiknum í 2-1 sigri en hann fór af velli um tíu mínútum seinna.
Níu mínútum eftir markið þá ákvað Marega að ganga af velli en hann varð fyrir kynþáttaníði frá stuðningsmönnum gestaliðsins.
Margir leikmenn reyndu að sannfæra Marega um að spila áfram en honum var að lokum skipt af velli.
Framherjinn setti svo inn Instagram færslu eftir leikinn þar sem hann kallaði þá seku hálfvita.
Liðsfélagar Marega hafa fengið harða gagnrýni fyrir að reyna að stöðva hann frá því að yfirgefa völlinn.
Porto’s Moussa Marega tried to sub himself off earlier as he couldn’t deal with the racist chants from Guimaraes fans. Awful 😡
Instead of going off with him, his teammates tried their best to get him to stay.
The teammates should have walked off as well.pic.twitter.com/413UwloUbx— BenchWarmers (@BeWarmers) 16 February 2020