fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Wolves hafði betur gegn Arsenal

Aron Guðmundsson
Sunnudaginn 29. nóvember 2020 21:17

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vandræði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni héldu áfram í kvöld er liðið tapaði 1-2 fyrir Wolves á heimavelli í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Leikurinn byrjaði á óhugnalegan hátt þegar David Luiz og Raul Jimenez skullu saman í vítateig Wolves á 5.mínútu. Leikurinn var stöðvaður í um það bil tíu mínútur og Jimenez fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús. Það hefur nú verið staðfest að hann er kominn með meðvitund og bregst vel við meðferð á sjúkrahúsinu.

Pedro Neto kom Wolves yfir á 27. mínútu. Leikmenn Arsenal voru hins vegar fljótir að svara fyrir sig því þremur mínútum síðar jafnaði Gabriel leikinn með skallamarki eftir hornspyrnu Willian.

Á 42. mínútu kom Daniel Podence gestunum hins vegar aftur yfir.

Leikmenn Arsenal sóttu án afláts að marki Wolves það sem eftir lifði leiks en náðu ekki að finna leiðina framhjá varnarmönnum Wolves og að jöfnunarmarki.

Arsenal er eftir leikinn í 14. sæti deildarinnar með 13 stig. Wolves fara með sigrinum upp í 6. sæti þar sem þeir eru með 17 stig.

Arsenal 1 – 2 Wolves 
0-1 Pedro Neto (’27)
1-1 Gabriel (’30)
1-2 Daniel Podence (’42)

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Hrun Liverpool er áhugavert – Svona var staðan í lok janúar þegar Klopp kynnti áform sín

Hrun Liverpool er áhugavert – Svona var staðan í lok janúar þegar Klopp kynnti áform sín
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið
433Sport
Í gær

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik
433Sport
Í gær

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton