fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
433Sport

Stökkbreytt COVID-19 veira hefur áhrif á íslenska landsliðið: „Það eru ekki margar lausnir í þessu“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. nóvember 2020 09:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gríðarleg óvissa ríkir með landsleiki Íslands gegn bæði Danmörku og Englandi vegna þeirra hertu reglna sem Bretar hafa sett á Danmörku vegna kórónuveirunnar. Einstaklingar sem ferðast til Bretlands frá Danmörku munu þurfa að sæta sóttkví í 14 daga og eru engar undanþágur í boði.

Ísland á leika við Danmörku í Kaupmannahöfn á sunnudag og gegn Englandi í London á miðvikudag í næstu viku. UEFA reynir að fá undanþágu en óvíst er hvort það takist. Ástæðan fyrir þessu ferðabanni er stökkbreytt kórónuveira sem hefur borist í minnka og er ótti við að bóluefni gegn COVID-19 muni ekki ná til hennar.

Einnig er ljóst að ef UEFA fær ekki undanþágu í gegn munu Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Jón Daði Böðvarsson og Rúnar Alex Rúnarsson ekki fara til Danmerkur, allir leika með liðum á Englandi. Þá er ljóst að sá hópur sem færi til Danmerkur myndi ekki fara í leikinn við England.

„Við vitum það sama og aðrir, UEFA er að reyna að vinna með enskum stjórnvöldum,“ sagði Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari við 433.is um málið.

Íslenska landsliðið og starfslið ætlar ekki að hugsa út í þessa hluti fyrr en eftir leikinn við Ungverjaland á fimmtudag. „Við höfum tekið þann pól í hæðina að hugsa bara um leikinn á fimmtudag.“

Freyr segir ljóst að ef undanþága frá yfirvöldum í Bretlandi kemur ekki þá sé staðan flókin. „Á meðan reglurnar eru svona er ljóst að leikmennirnir okkar sem spila á Englandi fara ekki til Danmerkur og ef við spilum í Danmörku þá fer sá hópur leikmanna ekki til Englands og ekki starfsliðið heldur. Þetta er staðan núna, við vitum ekkert hvað gerist. Við höfum tekið meðvitaða ákvörðun um að leikurinn á fimmtudag er það eina sem skiptir máli.“

Freyr segir óvíst hvað gerist. „Það hlýtur að vera einn kostur í stöðunni að Danir færi heimaleiki sína, það eru ekki margar lausnir í þessu máli.“

Freyr sagði að stór hópur landsliðsmanna hefði komið saman í Augsburg í Þýskalandi í gær og að restin kæmi til landsins í dag til að hefja undirbúning. Liðið heldur svo til Búdapest á miðvikudag fyrir úrslitaleikinn um laust sæti á EM.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum
Duran aftur til Evrópu

Mest lesið

Nýlegt

Frá Roma til Besiktas
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool býður leikmann í skiptum fyrir Guehi

Liverpool býður leikmann í skiptum fyrir Guehi
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Víkingur staðfestir tíðindin sem hafa legið í loftinu

Víkingur staðfestir tíðindin sem hafa legið í loftinu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar

Karólína tjáir sig um sögusagnirnar og gefur sterkar vísbendingar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Mikill hiti á miðvikudag

Mikill hiti á miðvikudag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Segir tvennar sögur fara af launapakkanum í Garðabæ – Frítt eða tæpar 3 milljónir á mánuði?

Segir tvennar sögur fara af launapakkanum í Garðabæ – Frítt eða tæpar 3 milljónir á mánuði?