Samkvæmt núverandi reglugerð vegna hertra takmarkanna til að berjast við kórónuveiruna mætti spila fótbolta utandyra, það voru hins vegar tilmæli frá ÍSÍ og öðrum aðilum sem urðu til þess að Íslandsmótin í knattspyrnu voru stöðvuð.
Von er á nýrri reglugerð á morgun sem mun þó að öllum líkindum byggja á þeirri sem nú er í gangi. COVID-19 veiran hefur verið í vexti hér á landi síðustu daga og vikur og virðist smitum ekki fara fækkandi.
KSÍ býður nú og vonar að boltinn geti farið að rúlla aftur af stað en samkvæmt tilmælum hafa lið á höfuðborgarsvæðinu ekki getað æft. KSÍ sendi fyrirspurn á Almannavarnir og býður svara.
„Ekkert formlega en þau sendu okkur fyrirspurn og ræddu við okkur fyrr í vikunni um hvort við gætum sagt til um hvernig mál myndu þróast. Svar okkar er að minnisblað sóttvarnarlæknis myndi skera úr um það og viðbrögð heilbrigðisráðuneytisins og við getum ekki svarað því fyrr en á morgun,“ sagði Víðir Reynisson á fundi í dag við fyrirspurn frá Magnúsi Einarssyni ritstjóra Fótbolta.net.
Lítið er eftir af Íslandsmótunum í knattspyrnu og þá sérstaklega í neðri deildum þar sem örfáir leikir eru eftir.
„Ég vil ekki fara í smáatriðum út í hvað stendur í minnisblaðinu en í grundvallaratriðum tel ég ekki rúm núna til að fara út í tilslakanir,“ sagði Þórólfur Guðnason um málið.
KSÍ hefur gefið sér til 1 desember að klára öll mót en talsverð pressa er frá félögum um að blása mótin af.