Stjarnan tók á móti FH í Pepsi-max deild karla í kvöld.
Pétur Viðarsson skoraði fyrsta mark leiksins á 54. mínútu og kom FH yfir. Allt stefndi í sigur gestanna þar til Hilmar Árni Halldórsson steig upp. Heiðar Ægisson kom þá með drauma fyrirgjöf fyrir mark FH. Þar var Hilmar Árni á réttum stað og kom boltanum í netið.
Eftir leikinn er FH í öðru sæti með 33 stig eftir 17 leiki og Stjarnan í því fjórða með 28 stig eftir 16 leiki.
Stjarnan 1 – 1 FH
0-1 Pétur Viðarsson (54′)
1-1 Hilmar Árni Halldórsson (90+3?)