John Aldridge, goðsögn Liverpool, hefur nefnt þrjá leikmenn sem gætu farið frá félaginu í sumar.
Það gætu orðið breytingar á leikmannahópi Liverpool í sumar en sumir fá lítið að spila þessa dagana eftir gott gengi.
Aldridge nefnir einnig framherjann Timo Werner sem gæti reynst góður möguleiki fyrir félagið í sumar.
,,Ég get séð Dejan Lovren, Adam Lallana og Xherdan Shaqiri fara og Jurgen Klopp mun vilja leysa þá af hólmi með ungum og hungruðum leikmönnum sem henta,“ sagði Aldridge.
,,Framherjinn Timo Werner hjá RB Leipzig gæti verið góður möguleiki og það sem gerir Liverpool ánægt er að allir vilja vera hluti af þessari sögu.“