Það er vesen hjá David Beckham í Miami en heimavöllur Inter Miami er á eftir áætlun.
Félagið hefur leik í MLS deildinni eftir tvo mánuði og á þá að taka á móti LA Galaxy.
Inter Miami er að hefja leik en félagið hefur greint frá því að bygging vallarins gangi hægar, en gert var ráð fyrir.
Beckham hefur eytt miklum tíma í Miami síðustu mánuði til að hjálpa við að koma félaginu af stað.